Vid erum Svala Björt og Lilja Mist Alexandersdætur






Svala Björt
fæddist á Kvinnokliniken í Lund í Svíþjóð 23 juni 2005!
Mamma byrjaði að fá verki um kl.4 um morguninn en ég mætti ekki fyrr en kl.20.34 um kvöldið.
Pabbi, amma og farmor voru viðstödd fæðingu minni og sögðu allir að mamma hafi verið rosa dugleg!
Allt gekk mjög vel, nema mömmu var ennþá smá óglatt eftir að ég fæddist!


Lilypie Fifth Birthday tickers


Lilja Mist
fæddist á Kvinnokliniken í Lund í Svíþjóð 19 juni 2007!
Mamma byrjaði að fá verki um kl.13 (18 júní) en ég mætti ekki fyrr en kl.00.34 um nóttina.
Pabbi, amma og Björg voru viðstödd fæðingu minni og sögðu allir að mamma hafi verið rosa dugleg! Allt gekk mjög vel, mamma vildi fara í sturtu strax og fór heim 12 tímum seinna.


Lilypie Third Birthday tickers













Mamma okkar heitir Ester Birna Hafþórsdóttir ('84) og er uppalin í Reykjavík. Hún flutti til Svíþjóðar júní 2000.
2008 fluttum við til Íslands og bjuggum þar í 2 ár. Núna erum við flutt aftur til Svíþjóðar.


Pabbi okkar heitir Alexander Abonius og hann býr í Svíþjóð.









Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.













Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.













Emelía Dís og Íris Alma frænkur
Ásdís Ösp & Alexandra
Krista Björt & Daníel Rökkvi (frænka og frændi)
Kristófer frændi
Sebastian, Tara Líf & Tiffany Lind













Þú ert gestur nr. 33711